Ömurlegar fréttirIngibjörg

Freydís Ninja (Freyja)

F:  21.desember 2005
D: 9.desember 2008

Elsku Freyja mín er farin. Hún sofnaði svefninum langa morgunninn 9.desember.

9.mars árið 2006 bættist Freyja í fjölskylduna. Hún var yndislegur, lítill og mjúkur hnoðri sem að var svo dugleg þegar að hún var skilin eftir hjá okkur. Hún vældi eiginlega ekkert og það gekk rosalega vel fyrstu nóttina. Ég elskaði hana útaf lífinu og lofaði henni að henni yrði ekki lógað snemma eins og mörgum öðrum blendingshundum. Ég gat því miður ekki staðið við þetta loforð því að Freyja var orðin mjög grimm við ókunnuga og átti það til að reyna að bíta. En það er eitthvað sem ég vil ekki muna, heldur við ég muna Freyju mína sem litlu prinsessuna sem var svo góð við okkur hér heima og kúrði með manni og lék sér við mann hvenær sem maður vildi. Hún var yndisleg og góð, en algjör óheppnisgrís.
Ég á eftir að sakna hlýja mjúka feldsins hennar, hvernig hún nuddaði á sér hausinn með loppunum þegar maður blés framan í hana og hvernig hún reyndi að ná puttunum á manni þegar maður stríddi henni með því að pota í hana og síðast en ekki síst súkkulaðibrúnu biðjandi augunum hennar.
Baltó saknar hennar hræðilega mikið og á ekki auðvelt með að vera einn enda hefur hann alltaf verið með henni frá því hann kom til okkar.

Sá dagur mun koma að við hittumst aftur við Regnbogabrúnna Freyja mín.
Ég sakna þín! Þú munt alltaf eiga stóran stað í hjarta mínu.


They say memories are golden, well maybe that is true
I never wanted memories, I only wanted you.
A million times I needed you, a million times I cried.
If love alone could have saved you, you never would have died.
In life I loved you dearly, in death I love you still.
In my heart you hold a place no one could ever fill.
If tears could build a stairway and heartache make a lane,
I'd walk the path to heaven and bring you back again.
Our family chain is broken, and nothing seems the same.
But as we are called one by one, the chain will link again.

Loksins, loksins!Ingibjörg

Hæhæ. Loksins kem ég með uppfærslu. Við fórum með Baltó á sýningu í gær og það gekk bara fínt miðað við að þetta var önnur sýningin sem við förum á. Umsögnin og það er komið inn í "sýningar"

Kveðja Ingibjörg,Freyja og Baltó

3ja glasið...Ingibjörg

Jæja,, þá er þriðja glasið af olíunni komið í feldinn, og þið fáið að sjá breytinguna eftir það í næstu viku þegar fjórða glasið er komið í ;) Og svo eftir tvær vikur fáiði að sjá endanlegt útlitið á feldinum... :)
En já, ég nennti ekki að taka mynd núna, en læt bara hérna eina sem var tekin fyrir 2 dögum minnir mig...


Læt líka eina af Freyju :)

...Ingibjörg

Jæja, þá er glas 2 af Dermoscent hárolíunni komin í feldinn á Baltó... Ég hef tekið eftir því að feldurinn er ekki jafn fitugur eftir þessa einu viku og þessvegna verður alveg frábært að sjá hverngi hann verður vikuna eftir að öll glösin eru búin :)
Annars voru hundarnir á hundahótelinu á Bergi við Grundarfjörð frá mánudegi til fimmtudags og ég held það hafi bara verið allt í lagi... Fórum semsagt og sóttum þau í gær og mikið rosalega voru þau ánægð að hitta okkur aftur!
En annars er bara ekkert meira að frétta sem ég man eftir svo ég set bara næstu mynd,, þið kannski sjáið ekki mikinn mun á myndunum, en það er smá munur...

Image and video hosting by TinyPic

Góðan Daginn.Ingibjörg

Jæja, allt gott að frétta af okkur... Við erum að byrja að reyna að gera feldinn hans Baltós fallegri, keyptum okkur Dermoscent hárolíu og vorum að setja fyrsta glasið í feldinn í dag.
Ætla að setja inn myndir einu sinni í viku eftir hvert glas og svo set ég eina alveg í endann bara vikuna eftir að við klárum síðasta glasið.
Svo erum hundarnir byrjaðir á nýju fóðri, ProFormance, mjög ódýrt og gott fóður... 22,7 kg. á 8.200 :)
Svo erum við bara á fullu að fita Baltó og bara að reyna að gera hann eins flottann og við getum fyrir sýninguna í september. :)
En við þurfum að fara með Freyju til dýralæknisins og láta hann kíkja á skottið á henni, það var allt í einu orðið svo beyglað og svo var svona kúla á skottinu endinn á skottinu(það sem var fyrir aftan kúluna) var eiginlega bara máttlaus svo hún gæti verið brotin eða brákuð eða eitthvað litla skinnið. Vonum bara að það sé ekkert stórt og henni batni.

En já, svo keyptum við líka, með hárolíunni, leikfang fyrir hundana.. Það er frá Busy Buddy og kallast The Waggle, það er hægt að setja inn í það nammi og ég setti cheerios og þau alveg fengu æði fyrir leikfanginu og Baltó fattaði strax hvernig hann næði namminu út... semsagt með því að rúlla eða sveifla dótinu.. Rosa gaman... :)

En við höfum þetta bara gott í bili.

Kveðja Ingibjörg og hundarnir

Image and video hosting by TinyPic
Baltó eftir að fá fyrsta glasið af olíunni í feldinn.

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...